|
Bakverk heildsala var stofnað í maí 2003. Upphaflega lágu aðalverkefni í viðgerðum og endurbyggingum á Baader vélum ásamt . Sú vinna hefur flust yfir á annað fyrirtæki í dag Stál Tech. Aðal starfsemi Bakverk heildsölu í dag er innflutningur og heildsölustarfsemi sem mikið er í kringum sjávar og matvælaiðnað ásamt véla og þjónustuiðnaði.
UNI-chains A/S er annar stærsti framleiðandi færibandakubba, keðja og fylgihluta í heimi. Markmið fyrirtækisins eru að framleiða hágæða vöru á góðu verði og fer mikill hluti hagnaðar í þróun á framleiðsluvörum og hönnun á nýjum vörum. Undanfarin ár hefur fyrirtækið lagt mikið upp úr framleiðslu á færibandakubbum sem standast kröfur um aukið hreinlæti í matvælaiðnaði.
KEMA A/S framleiðir hágæða efnavörur fyrir alls konar iðnað og er fyrirtækið með meira úrval efnavara en nokkur samkeppnisaðila þeirra getur státað af.
SYSTEM CLEANERS er lágþrýstings þvottakerfi sem er hannað fyrir matvælaiðnað. Nú á dögum þegar sífellt er verið að gera auknar kröfur til hreinlætis í þeim iðnaði er lágþrýstingur það sem koma skal. Kerfin fást í ýmsum útgáfum, frá alsjálvirku þvottakerfi til lítilla stöðva á hjólum. Lágþrýstingskerfin standast allan samanburð við háþrýstingskerfi hvað varðar hreinsun, en bíður jafnframt upp á ýmsa kosti sem háþrýstingskerfin geta ekki staðist. System Cleaners kerfin eru t.d. viðhaldslítil og skemma ekki viðkvæman rafmagnsbúnað véla.
LPS efnavörur voru fyrst hannaðar fyrir flugvélaiðnaðinn en eru nú notaðar í ýmsum tilgangi. Efnin hafa fengið ýmsar viðurkenningar frá vel þekktum fyrirtækjum, .s.s Boeing, Ford, Kodak, Landbúnaðarstofnun Kanada og svo mætti lengi telja. LPS hefur verið lengi á markaði og er eitt best þekkta vörumerki innan efnavörugeirans í heimi.
ROCOL Site safety system er öryggisbúnaður frá ROCOL. Í þessum vöruflokki má finna ýmislegt sem eykur öryggi á vinnustöðum, t.d. EASYLINE línustrikunarvagnar og málning, málning og límbönd til að setja á sleip gólf og ýmis önnur hjálpartæki.
NTF lausnir. Hér er hægt að fá ýmsar lausnir fyrir fiskvinnslu- og matvælaiðnað þar sem krafa er um hreinlæti er í fyrirrúmi. NTF lausnir er smíðað úr RF stáli 305 og 316ef óskað er. Einnig er hægt að fá slönguhengi, skóhillur, stígvéla- og hanska þurkara, grindur og rúslakörfur af ýmsum stærðum svo eitthvað sé nefnt. Leitið nánari upplýsinga hjá Bakverk heildsölu eða skoðið heimaíðu hjá NTF.
Wippermann drifkeðjur. Bakverk heildsala hefur hafið sölu á Wippermann drifkeðjum og er hægt að fá í zinkhúðaðar, ryðfríar og svartar. einfaldar, tvöfaldar og þrefaldar svo eitthvað sé nefnt. Þessar keðjur eru mikið notað í Baader vélar og ekki sýst þar sem álag er mikið. Þetta eru sterkar og endingargóðar keðjur.
Sunpack er framleiðandi í Kína sem framleiðir einnota og margnota stórsekki undir t.d. fiskimjöl, úrgang, sement ofl. Þetta eru sterkir pokar af ýmsum stærðum og gerðum eftir ósk hvers og eins.
NU TECH er hágæða stillifætur framleitt úr RF stáli ætlað í matvælageirann þar sem mikið mæðir á.
MOHN lausnir. Hér er hægt að fá ýmis tæki og hluti sem ætlað er til matvælaframleiðslu. Hér er hægt að fá t.d. RF kör af ýmsum stærðum og gerðum, ýmsar gerðir af hurðum fyrir frysta og kæla ásamt vængjahurðum. |